15.apríl 2008
Enn bætist í flóruna af íslenskum lyklaborðum. En IOD hefur kappkostað að bjóða uppá eins mörg íslensk lyklaborð og mögulegt er í samstarfi við aðila eins og Logitech.
Wave lyklaborðin eru með þægindi í fyrirrúmi og markmiðið í hönnuninni er að lyklaborðið passi við okkur frekar en við reynum að aðlagast lyklaborðinu. Wave laga hönnunin er löguð að fingrum okkar og mjúk armhvíla tryggir þægindi þegar við vinnum við tölvuna. Helstu margmiðlunartakkar eru á borðinu sem auðvelda aðgang að hinum ýmsu forritum.
Hægt er að fá wave lyklaborðin í tveimur útgáfum, stakt með þræði eða þráðlaust með þráðlausri Logitech LX8 mús, saman í einum pakka. LX8 mun einnig koma í stöku en hún er þráðlus mús með laser, gúmmí gripi og passar í hvort tveggja hægri eða vinstri hendi.
Í byrjun maí kemur ný útfærsla af Logitech MX5000 bluetooth lyklaborðinu vinsæla sem mun heita MX5500 og verður með MX Revolution músinni með Blutooth tækni. Þetta lyklaborð mun koma með ábrenndum íslenskum stöfum og mun verða fullkomnasta íslenska lyklaborðið á markaðnum.
